LÖG FÉLAGSINS
1. grein
Nafn félagsins er Skotfélag Austurlands. Heimili þess og varnarþing er í Múlaþingi.
2. grein
Félagið er félag áhugamanna um skotvopn, skotfimi og skotveiðar. Félagið er deildarskipt. Riffill- haglabyssu og bogdeild. Deildir starfa samkvæmt sérlögum sem laganefnd ÍSÍ samþykkir og samkvæmt lögum félagsins og siðareglum þess.
3. grein
Tilgangur félagsins er þessi:
Að gæta hagsmuna félagsmanna.
Að vinna að eflingu skotíþrótta og halda skotmót
Að stuðla að bættri meðferð skotvopna og vinna gegn ógætilegur umgengni þeirra. Einnig að stuðla að fræðslu um málefni sem snerta skotfimi, skotveiðar, skotvopn og skotfæri.
Að fræða félagsmenn og aðra um þau lög, reglugerðir og reglur sem í gildi eru hverju sinni í landinu og tengjast markmiðum félagsins.
4. grein
Félagsaðild er öllum heimil. Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg.
5. grein
Félagar greiða árgjald til félagsins. Upphæð ársgjalds er ákveðin á aðalfundi. Félagi nýtur fullra réttinda ef hann er skuldlaus við félagið. Skuldi félagsmaður árgjald fyrir tvö ár má stjórnin víkja honum úr félaginu að undangenginni innheimtutilraun.
6. grein
Enginn félagsmaður ber ábyrgð á skuldbindingum félagsins með öðru en gjöldum sínum. Enginn félagsmaður á tilkall til hluta af eignum félagsins þótt hann hverfi úr því, verði vikið úr því eða félaginu slitið.
7. grein
Gerist félagi brotlegur við vopnalög, lög félagsins, eða siðareglur þess getur stjórn veitt meðlimi áminningu eða vikið honum úr félaginu. Brottvikning úr félaginu skal vera skriflega frá stjórn.
8. grein
Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi. Formaður skal kosinn sérstaklega. Stjórnin skiptir að öðru leiti með sér verkum. Í varastjórn skal kjósa tvo menn.
Formaður situr í tvö ár í senn
Gjaldkeri situr einnig í tvö ár í senn.
Það skal eftir fremsta megni komast hjá því að bæði formaður og gjaldkeri fari úr stjórn samtímis.
9. grein
Hægt er að krefja aðalfundar með áskorun frá fimmtíu félagsmönnum til stjórnar. Þá ber að boða til fundar ótvírætt viku frá afhendingu undirskriftar með viku fyrirvara. Ákjósanlegt tímabil aðalfund félagsins er á tímabilinu frá byrjun mars til loka maí ár hvert. Boða skal til aðalfundar ótvírætt með viku fyrirvara. Aðalfundur er löglegur hafi verið löglega til hans boðað.
10. grein
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Störf aðalfundar eru þessi:
Fundarsetning
Fundarstjóri og fundarritari tilnefndir
Skýrsla stjórnar og nefnda
Reikningar félagsins lagðir fram
Lagabreytingar
Kosning stjórnar, nefnda og tveggja endurskoðenda
Upphæð ársgjalds ákveðin
Önnur mál
11. grein
Lögum félagsins verður einungis breytt á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða
12. grein
Samþykki tveggja aðalfunda í röð þarf til að leggja félagið niður. Eignir félagsins renna þá til UIA
13. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Egilsstaðir
28.apríl 2023